Aðalfundur Árborgar

Í kvöld, 18. september, heldur Árborg – félag smábátaeigenda á Suðurlandi aðalfund sinn. Fundurinn verður í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hefst kl 20:00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Örn Pálsson mæta á fundinn og svara fyrirspurnum og flytja fréttir af því sem hæst ber hjá LS þessa dagana. M.a. af viðræðum við fulltrúa sjómannaforystunnar að fyrirhuguðum kjarasamningi við smábátaeigendur.

Formaður Árborgar er Þorvaldur Garðarsson.Þorvaldur Garðars 2-1854-100.jpg