Aðalfundur Hrollaugs 2010 var að venju haldinn
27. september. Fundurinn var í
Nýheimum, menningarmiðstöð Hornfirðinga. Fjölmörg málefni smábátaútgerðarinnar komu til
umræðu á fundinum. Úr þeim jarðvegi
voru samþykktar tillögur til aðalfundar LS.
- LS beiti sér fyrir
því að makrílrannsóknir verði stórauknar og þá sérlega magn hans og fæðuval upp
við strendur landsins.
Í greinargerð með tillögunni segir; að á haustmánuðum hafi orðið talsvert vart við makríl
inná fjörðum og flóum á Austur- og Norðurlandi. Lítið hefur verið kannað
um hversu mikið magn er að ræða og hvað hann er að éta.
- LS safni upplýsingum um hversu
mikið magn af grásleppu er landað sem meðalafla á uppsjávarveiðiskipum.
Í umræðu með þessari samþykkt
kom fram að vísbendingar séu um að umtalsvert magn af grásleppu slæðist með í
flottroll við síldar- og makrílveiðar.
Fundarmenn voru einhuga um að skora á sjávarútvegsráðherra
að auka þorskkvótann um 0-0-40 tonn.
Auk þessa var ályktað um að LS
beiti sér fyrir því að:
- handfæraívilnun verði komið
á - línuívilnun nái jafnt til
allra dragróðrabáta - byggðakvóti verði tekinn inn
í línuívilnunarpottinn - tími verði styttur á
línuívilnun úr 24 klst. í 18 klst.
Stjórn Hrollaugs skipa
eftirtaldir:
Arnar
Þór Ragnarsson formaður
Unnsteinn
Þráinsson gjaldkeri
Elvar
Unnsteinsson ritari
,