Aðalfundur LS 2008 – þorskkvótinn verði aukinn nú þegar


Á aðalfundi LS var mikil og þung umræða um efnahagsástandið.  

Af því tilefni var eftirfarandi samþykkt:         

                         

24.
aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hefur miklar áhyggjur af bágu
efnahagsástandi á Íslandi. 
Fyrirsjáanlega eru miklir erfiðleikar í smábátaútgerð vegna hruns
íslensku krónunnar, sem leiðir af sér mikla hækkun erlendra lána en flest öll
lán íslensks sjávarútvegs eru í erlendri mynt.  Ennfremur hafa öll aðföng
stórhækkað vegna gengisfalls krónunnar.  Smábátasjómenn minna á að þeir eru
lífæðar margra sjávarþorpa allt í kringum landið og ætla að vera svo áfram, en
til að svo megi vera þarf starfsumhverfið að vera í lagi. 

Það er
krafa fundarins að stjórnvöld grípi nú þegar til eftirfarandi aðgerða:

§ 
Þorskkvótinn
verði aukinn.

§ 
Línuívilnun
verði breytt í krókaívilnun, verði hækkuð og nái til allra dagróðrabáta sem
veiða með krókum.

9-01-100.jpg

§ 
Auðlindagjald
verði aflagt.

§ 
Lán verði
aðlöguð núverandi aðstæðum, til dæmis með lengingu lána og aðeins séu greiddir
vextir í tvö ár.

§ 
Tekin verði
ákvörðun um jafnstöðuafla í þorski upp á 220 þúsund tonn til næstu þriggja ára.

§ 
Flutningskostnaður
innanlands verði niðurgreiddur.

,

Aðalfundur LS 2008 – ræða framkvæmdastjóra”


Uppskriftir