Aðalfundur Reykjaness – vilja hefja strandveiðar 1. apríl


Fyrr í dag var haldinn aðalfundur Reykjaness.  Fundurinn var vel sóttur og fjölmörg mál krufinn til mergjar og ályktað um þau.

Strandveiðikerfið var fyrirferðamikið í umræðunni.  Ákveðið var að leggja til við aðalfund LS að í stað 1. maí yrði byrjunartími á strandveiðum færður til 1. apríl á svæði D.   Ánægja er með núverandi svæðaskiptingu, en megn óánægja með að ufsi skuli ekki talinn til þorskígilda í heildarafla í stað kílóa eins og nú er.


Á fundinum var rætt um kvótaþak í krókaaflamarki, en núverandi reglur gera ráð fyrir að ekkert fyrirtæki í krókaaflamarki sé heimilt að eiga meiri hlutdeild en 4% í þorski, 5% í ýsu og 5% þorskígildum.  Fram kom að þegar lögin voru sett hafi eitt fyrirtæki, Stakkavík, verið yfir þessum viðmiðunarmörkum og hefur Alþingi frestað því að það láti frá sér hlutdeild þannig að hún fari niður fyrir umrædd mörk.   Fundarmenn voru á einu máli um að lagaákvæðið væri ósanngjarnt gagnvart fyrirtækinu og afturvirkni væri vafasöm.  Samþykkt var að beina því til aðalfundar LS að hann beitti sér fyrir því að lögum yrði breytt þannig að fyrirtækið gæti haldið sinni hlutdeild.  


Aðalfundur Reykjaness samþykkti og ítrekaði tillögur um takmörkun trollveiða og lokun svæðis vestan Reykjaness.  


Að lokum samþykkti fundurinn að beina því til LS að efna til golfmóts meðal trillukarla þar sem svæðisfélögin mundu etja kappi sín á milli.  


Stjórn Reykjaness skipa eftirtaldir:

Halldór Ármannsson formaður

Jón Jóhannsson ritari

Þorlákur Halldórsson gjaldkeri

Eyþór Reynisson meðstjórnandi

Klemens Einarsson