Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur

Boðaður hefur verið aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur. Fundurinn verður nk. fimmtudag 5. október í húsnæði félagsins í Grófinni og hefst kl 20:00.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á það sem fundurinn samþykkir að senda frá sér.ThorvGunnl2-2239-100.jpg

Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Þorvaldur Gunnlaugsson.

Formaður og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.