Almanak LS 2007 komið út

Almanak Landssambands smábátaeigenda kemur nú út í 5. skiptið. Öllum félags- og velgjörðarmönnum var sent það um áramótin ásamt Brimfaxa.

Að venju prýðir það fiskuppskriftir frá félagsmönnum, sem eru einstaklega girnilegar. Þá er á almanakinu ýmislegur fróðleikur.

Rétt er að vekja athygli á því að uppskriftir félagsmanna hafa fengið mikið lof undanfarin ár og hefur verið mikil ásókn í almanakið. Eftirspurninni verður nú svarað, bæði var prentað stærra upplag svo og að uppskriftirnar verða settar á www.smabatar.is