Ánægja með frjálsar handfæraveiðar – fyrningarleið áhyggjuefni


Stjórn Smábátafélags
Reykjavíkur kom saman til fundar í gær 13. maí og ræddi um áform stjórnvalda um
að innkalla aflaheimildir ásamt því að ræða ákvörðun fv. sjávarútvegsráðherra
að gefa handfæraveiðar frjálsar.

 

Eftirfarandi ályktun var
samþykkt:

 

·        „Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur lýsir yfir áhyggjum
vegna fyrirhugaðrar fyrningarleiðar ríkisstjórnarinnar í kvótamálum.  Á þessum ótryggu tímum  getur fyrningarleiðin orðið mjög erfið þeim
sem eru skuldsettir í smábátaútgerðinni. 

Hvetjum við ríkisstjórnina
til að hafa fullt samráð við okkur sem hagsmuna hafa að gæta og höfum treyst á þessa
atvinnugrein til lífsviðurværis.

 

·         Stjórnin lýsir yfir ánægju með þá  ákvörðun Steingríms Sigfússonar að gefa
handfæraveiðar frjálsar.  Smábátafélag
Reykjavíkur hefur ítrekað  ályktað í þá veru.“

 

Garðar Berg Guðjónsson er formaður

Smábátafélags Reykjavíkur       

Picture 4.png