Auglýst að nýju eftir umsóknum um byggðakvóta

&teVakin er athygli á að útgerðir báta frá Tálknafjarðarhreppi, Brjánslæk í Vesturbyggð og Stykkishólmsbæ verða að sækja að nýju um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 7-20-2006.

Byggðalögin óskuðu eftir að um úthlutun til báta hjá þeim giltu aðrar reglur en birtar voru í reglugerð nr. 439 frá 16. maí 2007. Sjávarútvegsráðuneytið staðfesti með auglýsingu í Stjórnartíðindum 24. september sl. ný skilyrði vegna úthlutunarinnar hjá nefndum byggðalögum.

Ráðuneytið féllst ; – auk þess sem fram kemur í reglugerð nr. 439 frá 16. maí 2007 – að við úthlutun til báta:

Í Tálknafjarðarhreppi skyldi úthluta til fiskiskipa hlutfallslega og taka mið af lönduðum afla til vinnslu í Tálknafirði 1. júlí 2006 til 30. júní 2007. Auk þess er felldur út liður c, 1. gr. reglugerðar nr. 439.

Á Brjánslæk í Vesturbyggð skyldi byggðakvóta til fiskiskipa úthlutað hlutfallslega miðað við landaðan afla í Vesturbyggð, frá 1. júlí 2006 til 30. júní 2007.

Í Stykkishólmsbæ verði byggðakvóta „skipt milli þeirra skipa sem yppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og aflahlutdeild í hörpudiski í Breiðafirði var bundin við þann 1. september 2006. Byggðakvóta skal skipt hlutfallslega miðað við aflahlutdeild í hörpudiski í Breiðafirði þann 1. september 2006.“ eins og segir í auglýsingu sjávarútvegsráðuneytisins.

Umsóknarfrestur er til 11. október 2007.

Sjá nánar: http://fiskistofa.is/frettir.php?id=9-7-1