Bætt aðgengi fiskkaupenda að afla sem fyrirhugað er að flytja óunninn úr landi

Skömmu fyrir jól varð að lögum frumvarp sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra um breytingar lögum um nytjastofan sjávar.  Markmið breytinganna er að bæta aðgengi
fiskkaupenda að afla sem ekki hefur verið endanlega vigtaður hér á landi og því
fyrirhugað að flytja úr landi. 

 

Samkvæmt hinu nýja lagaákvæði skulu upplýsingar um óunninn
afla sem fyrirhugað er að selja á fiskmarkaði erlendis vera birtar á opnum
uppboðsvef uppboðsmarkaðar fyrir sjávarafla þar sem aflinn skal boðinn upp þar
sem tilgreint er lágmarksverð.

 

Lagabreytingin tekur gildi 1. febrúar 2009.

 

Í umræðum um frumvarpið kom fram gagnrýni á það og skiluðu
tveir nefndarmenn sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar séráliti.

 

Grétar Mar Jónsson skipaði 1. minni hluta nefndarinnar, hann telur
að nauðsynlegt sé að fylgja ákvæði um lágmarksverð eftir með viðurlögum ef það er hærra en söluverð
erlendis.

 

Atli Gíslason skipar 2. minni hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar,
hann telur að í ljósi stöðunnar í þjóðfélaginu sé nauðsynlegt að heimila ekki
útflutning á óunnum afla til löndunar og sölu á fiskmörkuðum erlendis á
tímabilinu 1. mars 2009 til 31. desember 2009.

 

Sjá nánar:

 

            Umræður

 

            Nefndarálit
meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar

 

            Nefndarálit
1. minni hluta

 

            Nefndarálit
2. minnihluta

 

            Lög