Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Steingrímur J.
Sigfússon hefur fallist á beiðni LS um að bæta einni viku við þann tíma sem
ætlaður var til grásleppuveiða.
Í stað 55 daga verður heimilt að stunda veiðar í 62 daga.
Í bréfi LS til ráðherra kom fram að ástæður beiðninnar væru m.a.
miklar ógæftir sem valdið hefði veiðitapi og tjóni á veiðafærum sem í mörgum
tilfellum hefðu glatast með öllu. Þá bæri að líta til þess að mikil eftirspurn væri nú
eftir grásleppuhrognum og verð í sögulegu hámarki.
Einnig var bent á að heildarmagn sem komið væri að landi á
vertíðinni væri nú fimmtungi minna en á sama tíma í fyrra.