Er samningaleiðin innan seilingar?


Á ársfundi LÍÚ flutti Jón Bjarnason
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ræðu.  Þar gerði hann skýrslu starfshópsins um endurskoðun laga um
stjórn fiskveiða að umtalsefni og þakkaði þeim sem að komu, síðan sagði
ráðherra: 

 

„Ýmsir hafa undanfarið stigið fram og fundið
skýrslu hópsins margt til foráttu en það þarf hins vegar ekki að koma á óvart
að menn túlki einstaka þætti hennar út frá sínu hagsmunalegu sjónarhorni.  Ég er samt ekki í þeim hópi og segi að
vel hafi tekist til miðað við aðstæður.“

 

Ekki er ólíklegt að ráðherra eigi þarna við það
sem meirihluti starfshópsins leggur til það er „að endurskoða
fiskveiðistjórnunarkerfið með sjálfstæðri löggjöf sem taki hliðsjón af
auðlindastefnu almennt er byggist á hugmyndum um samningaleið.“, eins og segir í
kaflanum um úthlutun aflaheimilda.