Færeyjar – skerðing veiðidaga mætir hörðum viðbrögðum á Lögþinginu

Eins og greint var hér frá í gær vill Thorbjörn Jacobsen sjávarútvegsráðherra Færeyja skerða veiðidaga um helming vegna bágs ástands veiðistofna við eyjarnar.

Tillaga sjávarútvegsráðherra er nú rædd á Lögþinginu og öðlast ekki gildi fyrr en hún hefur verið samþykkt eftir þriðju umræðu.

Að sögn Auðuns Konráðssonar formanns Meginfelags ÚtróðrarmannaAudunn_DSCF3-5-00.jpg hefur tillaga ráðherrans mætt mikilli andstöðu þingheims. Hagsmunaaðilar allir sem einn beita miklum þrýstingi gegn tillögunni og nú þegar liggur fyrir að helmingur þingheims styður ekki tillögu Thorbjörns Jacobsens.

Á færeyska þinginu sitja 32 þingmenn, þar sem stjórnarflokkarnir hafa 17 þingmenn en stjórnarandstaðan 15.

Það vekur athygli sjómanna í Færeyjum að þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun þeirra mæli nú hrygningastofninn þann minnsta í sögu mælinga þar, að þá skuli stofnunin mæla seiðavísitölu sem frá stofninum kemur vel fyrir ofan meðallag.

Mynd: Auðunn Konráðsson