Fiskistofa minnir grásleppukarla á að skila inn skýrslum

Fiskistofa vekur athygli á að „enn hefur ekki verið skilað inn uppgjörsblöðum um veiði þessa árs vegna nokkurra báta sem voru með leyfi til grásleppuveiða á vertíðinni 2006.

Í janúarbyrjun mun Fiskistofa senda út eyðublöð vegna umsókna til grásleppuveiða árið 2007, því viljum við ítreka við þá sem að ekki hafa staðið skil á skýrslum/uppgjörsblaði fyrir árið 2006 að gera slíkt hið fyrsta. Grásleppuveiðileyfi fyrir árið 2007 verður ekki veitt fyrr en endanleg skýrsluskil vegna ársins 2006 liggja fyrir og uppgjörsblaði skilað.“