Fiskverð á íslenskum fiskmörkuðum – hækkun í apríl

Þorskur

Eftir að verð á þorski byrjaði að falla á mörkuðum í
desember rak hver mánuðurinn annan með lægra meðalverð.   Í apríl hefur þessi óheillaþróun
hins vegar stöðvast og verð byrjað að hækka.  Óslægður þorskur skilaði þá 186 kr/kg meðalverði sem var tæpum
11% hærra en í mars.

Sömu sögu er að segja af slægðum þorski verðið hærra í apríl
en það var í mars.

Þó verðhækkun hafi orðið í apríl eru verðin á þorski þó
langt frá því sem fékkst fyrir hann í nóvember.  Óslægður þorskur þarf að hækka um rúm 60% til að toppa það
eða í 305 kr/kg.

 

 

Ýsa

Þar hafa verðin ekki lækkað jafn mikið og í þorskinum.  Á umræddu misseri var það þó lægst í
mars, 149 kr/kg fyrir óslægða ýsu, hafði lækkað um 19% frá nóvember.   Þau verð hafa nú verið kvödd, með um 50% hækkun í apríl sem skilaði 220 kr meðalverði.   Þess má geta að að er fimmtungi
hærra verð en í nóvember sl.

Sambærileg verðhækkun milli mars og apríl hefur orðið á
slægðri ýsu.

 

 

Sjá nánar meðalverð þorsks og ýsu fyrstu átta mánuði fiskveiðiársins.

Picture 3.png

Picture 4.png

Picture 5.png

Picture 7.png



 

 

,

Fiskverð á mörkuðum gefur eftir