Fundað um kjarasamninginn á Egilsstöðum og Akureyri

Í dag laugardaginn 19. janúar verður fundað um kjarasamning Landssambands smábátaeigenda og sjómannasamtakanna í Félagi smábátaeigenda á Austurlandi. Fundurinn hefst kl 13:00 og verður á Hótel Héraði á Egilsstöðum.

Á morgun sunnudag verður Klettur með fund á Akureyri. Á hann eru boðaðir félagsmenn í Kletti – Ólafsfjörður til og með Tjörnes.
Fundurinn verður á Hótel KEA og hefst kl 17:00.

Formaður og framkvæmdastjóri LS munu mæta á báða fundina, kynna kjarasamninginn og svara fyrirspurnum.