Grásleppuleyfum fjölgar á nýjan leik

Kippur virðist hafa komið í útgáfu grásleppuleyfa í ár. Alls hafa verið gefin út 199 leyfi en í fyrra voru þau aðeins 144 og 3-1-2006. Gera má ráð fyrir að fjölgun veiðileyfa stafi af verðhækkun sem orðið hefur, milli ára.

Eins og fram hefur komið eru flest leyfin gefin út til veiða á svæði E sem afmarkast af Skagatá og Fonti á Langanesi, alls 80. 60 bátar eru nú búnir með tímann. Á öðrum svæðum er svipaða sögu að segja, meirihluti bátanna hafa klárað þá 50 daga sem leyfið gildir.

Undantekning á þessu er svæði B – í innanverðum Breiðafirði. Þar hófu flestir veiðar 20. maí sl. og mega því vera að til 9. júlí.