dag heldur Grásleppunefnd LS árlegan fund. Þar verða rædd málefni komandi vertíðar. Veiðitími, söluhorfur og markaðurinn
almennt.
Á
fundinum verður gerð grein fyrir LUROMA 2010, sem haldinn var í Kaupmannahöfn
sl. föstudag. Sá fundur var
sá stærsti frá upphafi, en fyrsti fundurinn var haldinn 1989, en alls sátu fundinn
40 aðilar. Fulltrúar
veiðimanna og framleiðenda kavíars og fulltrúi stjórnvalda á Nýfundnalandi.
Á
LUROMA 2010 kom m.a. fram að birgðastaða er nú í algjöru lágmarki og kallar markaðurinn
því eftir góðri vertíð.
Aðalfundur
LS samþykkti að veiðidagar á vertíðinni 2010 yrðu 60 sem er tveimur færra en á
síðustu vertíð. Auk þess að
veiðitímabil verði óbreytt og skötuselur sem meðafli við grásleppuveiðar
teljist ekki til króka- eða aflamarks.