Grásleppunefnd LS fundar um komandi vertíð

Í dag hélt
Grásleppunefnd LS árlegan fund sinn um horfur fyrir komandi vertíð.  Að
venju voru mörg mál á dagskrá, t.d. varðandi breytingar á reglugerð um
hrognkelsaveiðar.  Flestar eru þær smávægilegar.

 

Á fundinum
kom m.a. fram að hlutdeild Íslands í heildarveiðinni á síðasta ári var yfir
40%, sem er sú hæsta síðan 1985.  

 

Gríðarlegar
kostnaðarhækkanir hafa orðið á öllum aðföngum.  Net, tunnur og
flutningskostnaður hafa hækkað um 0-1-50%.  

 

Eftirfarandi
samþykkt var gerð á fundinum:

 

„Á fundi Grásleppunefndar Landssambands smábátaeigenda í dag 11. febrúar var rætt um verð
og markaðshorfur á komandi vertíð.

 

Nefndin
er sammála um að þrátt fyrir erfiða stöðu á mörkuðum sjávarafurða, séu markaðir
grásleppuhrogna í jafnvægi og birgðastaða ekki til þess að hafa áhyggjur af.  

 

Grásleppunefnd
LS skorar á veiðimenn að hefja ekki veiðar fyrr en viðunandi verð
og trygg sala hrognanna sé í hendi“. 

DSC5-9-0.jpg
Grásleppunefnd LS 2009.  Fremri röð frá v. Ragnar Sighvatsson og Guðmundur Jónsson, aftari röð frá v. Einar Sigurðsson, Gunnar Gunnarsson og Reimar Vilmundarson.

Grásleppunefnd LS leggur til 60 veiðidaga