Grásleppuvertíðin hafin – veitir 600 sjómönnum atvinnu

                   

Á fjórða tug grásleppubáta, allt frá Siglufirði að
Vopnafirði, lögðu netin í morgun í blíðskaparveðri.  Mikill hugur er í veiðimönnum sem líta með töluverðri
bjartsýni til vertíðarinnar.   

Á síðasta ári tókst að takmarka veiðina sem leiddi til mikillar eftirspurnar í lok vertíðar.  
Við slíkar aðstæður hefst veiðitímabilið nú, flesta framleiðendur
grásleppukavíars þyrstir í hrogn. 
Því er það undrunarefni að samningar um verð og veiðimagn hafa ekki enn náðst við alla þá sem
hófu veiðar í dag . 
Það er brýnt að slíkri óvissu verði eytt sem fyrst, þar sem staða markaðarins gefur tilefni til áframhaldandi verðmætaaukningar til hagsbóta fyrir þá sem atvinnu hafa af veiðum og
vinnslu grásleppu og grásleppuhrogna.  

 

Krafa veiðimanna nú er að greiddar verði 650 evrur fyrir
hverja tunnu af söltuðum grásleppuhrognum.    Gangi það eftir verður aflaverðmæti þeirra 8000
tunna sem ætlunin er að veiða um 700 milljónir.

 

Áætlanir gera ráð fyrir að 260 bátar stundi veiðarnar í ár og
vertíðin veiti um 600 sjómönnum atvinnu.