Fyrr í dag var nokkrum fulltrúum úr sjávarútvegi gefinn kostur á að hitta Michael Köhler, ráðuneytisstjóra sjávarútvegmála hjá Evrópusambandinu. Formaður LS sat fundinn.
Michael Köhler útskýrði eitt og annað varðandi hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB og svaraði spurningum.
Formaður LS spurði ráðuneytisstjórann eftirfarandi spurningar:
„Hversu líklegt er að Ísland fái varanlega undanþágu frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB“?
Svarið kom að bragði: „Afskaplega ólíklegt“.
Hreppsnefnd Höfðahrepps – burt með dragnótina úr Húnaflóa