Hrollaugur hvetur til varfærni við gulldepluveiðar


Í gær var haldinn
fundur í Hrollaugi smábátafélag Hornfirðinga

Fjölmargt var rætt
á fundinum og almenn gott hljóð í mönnum, enda virðist vera gott ástand í
hafinu hvað fisk varðar allt í kringum landið.

Í lok fundar var
eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Félagsmenn í
Hrollaugi eru ánægðir með og lýsa fullum stuðningi við þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að
úthluta hvalveiðikvóta til næstu fimm ára.  Nóg er af hval í sjónum og Íslendingar verða að nýta allar
auðlindir hafsins með sjálfbærum hætti.  

Jafnframt fagna
félagsmenn aukningu þorskkvóta, hún var löngu tímabær.

Félagar í Hrollaugi hafa hins vegar
áhyggjur út af gulldepluveiðum með flotvörpu því etthvað virðist meira koma í
trollið annað gulldepla.  Hrollaugur hvetur til að verði farið varlega í þær veiðar og
stundarhagsmunir verði ekki látnir ráða för.“

 

Formaður Hrollaugs er Unnsteinn Þráinsson