Hugmyndum um leigugjald harðlega mótmælt


Á nýafstöðnum aðalfundi LS viðraði Jón
Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hugmyndir um útleigu
aflaheimilda.  Málefnið var mikið
rætt á aðalfundinum og eftirfarandi ályktun samþykkt:

 

„Aðalfundur LS mótmælir harðlega
hugmyndum Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um að auka við aflaheimildir
gegn leigugjaldi frá ríkinu.

Með þessari aðferðafræði er verið að
kasta stríðshanska inn í atvinnugreinina og ein af afleiðingunum verða lakari
kjör fjölda sjómanna.  Þá hyglir
hún þeim sem selt hafa sig út úr fiskveiðunum, en eiga báta sína skuldlausa.

LS krefst þess að auknum aflaheimildum
verði ráðstafað með sama hætti og gert hefur verið til þeirra sem nú stunda
fiskveiðarnar og hafa, bótalaust, þurft að þola gríðarlegar skerðingar í helstu
botnfisktegundum á undanförnum árum og misserum.“





,