Hvatt til sáttaleiðar


Forseti
Farmanna- og fiskimannasambands Íslands ritar skoðunargrein í nýjasta tölublað
Fiskifrétta, sem ber yfirskriftina „Drullubræla framundan“.  Í greininni, sem rituð er undir
hughrifum af ræðu sjávarútvegsráðherra á þingi LÍÚ, ræðst hann á ráðherrann og
finnur störfum hans allt til foráttu. 
Ekki ætla ég deila þeirri skoðun með forsetanum.  Ég ætla hins vegar að halda því fram að
forsetinn hafi misskilið ræðu ráðherra og vil í því skyni benda honum á að lesa
ræðuna af meiri athygli.   

Því ber að fagna, en ekki
ráðast á með gífuryrðum, að í umræddri ræðu gagnrýnir ráðherra þá sem finna
skýrslu sáttanefndar „margt til foráttu“ og segir „að vel hafi tekist
til“.  
,


Orðrétt úr ræðunni:

    „Ýmsir hafa undanfarið stigið fram og
fundið skýrslu hópsins margt til foráttu en það þarf hins vegar ekki að koma á
óvart að menn túlki einstaka þætti hennar út frá sínu hagsmunalegu
sjónarhorni.  Ég er samt ekki í þeim hópi og segi að vel hafi tekist til
miðað við aðstæður.“


Forsetinn getur
því dregið gífuryrði og bölbænir í garð ráðherrans til baka og skipað sér í
flokk með undirrituðum sem hvetur ráðherrann til að hafa samningaleiðina að
leiðarljósi í væntanlegu frumvarpi. 

 

Í greininni getur forsetinn ekki látið hjá líða
að ítreka áðurframkomna fordóma sína gagnvart smábátaútgerðinni.  Samkvæmt venju notar hann upphrópunarstíl;
að ráðherrann skuli voga sér að hafa „ofurtrú á trillu og smábátavæðingu á einu
erfiðasta hafsvæði í veröldinni.“. 

Í þeirri orrahríð sem sjávarútvegurinn stendur
nú í þurfa hagsmunaaðilar að hafa hugfast að allar greinar sjávarútvegsins eiga
rétt á sér og samstaða um slíkt skilar honum best til framtíðar.
 


Örn
Pálsson framkvæmdastjóri

Landssambands smábátaeigenda