Klettur stærsta svæðisfélagið innan LS

Á árinu 2005 lönduðu alls 898 smábátar gegnum greiðslumiðlunarkerfi sjávarútvegsins, en þeir voru 1063 á árinu 2004. Af þeim tilheyrðu 128 (142) svæðisfélaginu Kletti; Ólafsfjörður – Tjörnes. Næst fjölmennasta félagið er Snæfell; Borgarnes – Búðardalur með 117 bátar (140), þriðja stærst er Reykjanes með 96 báta (107) og fjórða í röðinni er Félag smábátaeigenda á Austurlandi með 85 báta (108). Alls eru svæðisfélög LS 15. Auk þeirra sem hér hafa verið nefnd eru: Smábátafélag Reykjavíkur – 71 (98), Félag smábátaeigenda á Akranesi – 33 (31), Strandveiðifélagið Krókur – 49 (68), Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – 79 (98), Strandir – 36 (42), Skalli – 42 (46), Fontur – 46 (49), Hrolllaugur – 29 (30), Farsæll – 22 (23), Árborg – 9 (13) og Báran – 56 (68).

Tölurnar í sviga sýna fjölda báta á bakvið hvert félag 2004.