Sl mánudag var skoðað verð á fiski í Marks og Spencer við Oxford street í London. Þar var viðskiptavinum m.a. boðið upp á ferskan línuveiddan þorsk og ýsu. Pakkningar innihéldu tvo roð- og beinlausa flakahluta. Söluverðið var í góðu lagi, £24,99 / kg sem losar 0-2-3 krónur.
Gott framboð var á fiski í versluninni og greinilegt að gerður var greinarmunur á því hvort um línufisk væri að ræða eða ekki, þar sem verðið á sambærilegum þorski sem ekki var veiddur á línu kostaði £15.99 / kg, eða rúmar 0-0-2 krónur.