Mælt með áframhaldandi strandveiðum

 

Á fundi stjórnar LS 21.
og 22. júlí sl. var fjallað um hið nýja veiðikerfi strandveiðar.   Í lok umræðunnar var eftirfarandi
samþykkt:

 

„Landssamband
smábátaeigenda lýsir ánægju sinni með nýtt veiðikerfi – strandveiðar – og telur
að með þeim hefði verið komið til móts við samþykktir félagsins um frjálsar
handfæraveiðar.

 

LS hvetur til
áframhaldandi strandveiða á næsta fiskveiðiári þar sem afli strandveiðibáta
skerði ekki veiðiheimildir annarra skipa þar með talinn byggðakvóta.   Einnig leggur LS áherslu á að
hámarsafli á dag verði mældur í þorskígildum en ekki kílóum eins og nú er.“