Milljónatjón hjá grásleppuveiðimönnum

 

Foráttubrim í síðustu viku olli gífurlegu tjóni á
veiðarfærum grásleppukarla á N- og NA-landi. 

Hún var ömurleg aðkoman hjá grásleppuveiðimönnum um nýliðna
helgi þegar loks var hægt að vitja netanna eftir langvinna ótíð.  Þrátt fyrir að netin lægju á meira en
30 faðma dýpi sluppu þau ekki. 
Hafrótið náði þar niður og þyrlaði grjóti og öðrum ófögnuði af botninum
og lamdi í sundur.       Einnig
hefði fiskur lent í netunum og vafið þau þannig upp að brimið vann enn betur á
þeim og gerði þau með öllu ónothæf.

„Það er grátlegt að vera kominn í land með ónýt net eftir
aðeins 3 vikna notkun.   Góð
afkoma síðastliðins árs er fokin út í veður og vind í bókstaflegri merkingu.   Það er harla ólíklegt að þau örfáu
net sem sluppu geri mönnum kleift að jafna þann reikning.                                                

Ætli þessi bræla skráist ekki í sögubækur sem „stóra milljónabrælan“.  Aldrei þessu vant blasti við okkur
nægur markaður og hærri verð en menn hafa nokkru sinni séð,  sagði Einar Sigurðsson grásleppukarl á
Raufarhöfn. 

Að sögn Gunnars Gunnarssonar á Húsavík eru grásleppuveiðimenn þar sammála um að fara þarf allt aftur til ársins 1984, aldarfjórðung, til að finna hamfarir sem þessar.   

 IMG_0035.jpg

Tekið á bryggjunni á Húsavík í dag