Norðmenn hækka sjómannafslátt um rúm 40%

Í endurskoðaðri fjárhagsáætlun norsku ríkisstjórnarinnar kemur fram að sjómannaafsláttur hefur verið aukinn úr 0-0-80 norskum krónum í 0-0-115, þ.e. úr rúmum 1,25 milljónum íslenskra króna í tæplega 1,8 milljónir.

Haft er eftir Helgu Pedersen sjávarútvegsráðherra Noregs að „með þessu vilji stjórnvöld gera sjómannsstarfið samkeppnishæfara og auðvelda útgerðum að fá hæft fólk til starfa.“

Þetta kemur fram á fréttavef Interseafood.com
http://www.interseafood.com/ifx/?MIval=dispatch&pg=newsview&news_action=read&id_news=0-9-1

Við gerð mótvægisaðgerða ríkisstjórnar Íslands í kjölfar niðurskurðar þorskkvótans hvatti LS eindregið til þess að tekjutap sjómanna yrði bætt a.m.k. að hluta með því að hækka sjómannaafsláttinn verulega. Tillagan fékk hvorki hljómgrunn stjórnvalda né opinberan stuðning annarra hagsmunasamtaka í sjávarútvegi.

Það kveður sannarlega við annan tón hjá Norðmönnum. Með hækkun sjómannaafsláttar hyggjast þeir styrkja sjómannastarfið og efla útgerðina.

Sjómannaafsláttur á Íslandi er nú 834 kr á dag og getur því aldrei orðið hærri en um 300 þúsund krónur á ári.