Skipstjórinn á frystitogaranum Þór HF – Þorvaldur Svavarsson er í viðtali í „Úr Verinu“ í Morgunblaðinu í gær 28. apríl. Þar gagnrýnir Þorvaldur veiðiráðgjöf og stjórnunina. Hann segir þorsk á öllum veiðislóðum meira að segja á miklu dýpi þar sem hann eigi ekkert að vera að þvælast.
Í viðtalinu má glöggt lesa að sjónarmið þeirra sem eru á grunnslóðinni fer vel saman við sjónarmið togaraskipstjórans.
Þorvaldur segir að úthlutunin sé svo lítil að ekki sé hægt að veiða á hefðbundnum veiðislóðum þorsks, „hann er bara orðinn meðafli“.
Þorvaldur segir þorskinn vel haldinn, en bætir við. „Engu að síður held ég að það sé staðreynd að við erum að veiða ætíð frá þorskinum. Við erum að taka allt of mikið af loðnu. Þorskurinn verður að fá að éta. Það væri miklu nær að takmarka loðnuveiðarnar verulega og veiða hana aðeins til manneldis og fá þannig mikil verðmæti úr minna magni. Skilja hitt eftir handa þorskinum og búa þannig til enn meiri verðmæti.“
Í lok viðtalsins segir Þorvaldur: „Okkur vantar meiri þorskkvóta og það er full innistæða fyrir aukningu. Þá hefðum við það svakalega fínt. Stjórnvöld ættu að gefa út janfstöðuafla til fimm eða sex ára í senn, 0-0-200 til 0-0-220 tonn á ári, og láta okkur svo vera í friði.“