Þorskseiði í milljarðavís á Heiðagrunni?

Enn berast fréttir af þorskseiðum – nú á Heiðagrunni útifyrir Langanesi. Jóhann Halldórsson á Svönu frá Þórshöfn hafði samband og sagði mikla þorskseiðagengd greinilega ekki bundna við Eyjafjarðar- og Grímseyjarsvæðið.

„Ég hef verið að róa á Heiðagrunnið nú að undanförnu og þar er allt loðið af þorskseiðum, heilu torfurnar, gríðarlegt magn á ferðinni“, sagði Jóhann.