Óskalög sjómanna í Háskólabíói

Næstkomandi sunnudag 3. maí verða stórtónleikar í
Háskólabíói.  Þar mun Léttsveit
Reykjavíkur halda sína árlegu vortónleika.  

Léttsveitin er fjölmennasti kór landsins – telur 106 konur á
öllum aldri sem eiga það sameiginlegt að elska að syngja, eins og segir í
fréttatilkyningu frá Léttsveitinni.

Tónleikarnir bera yfirskriftina „Óskalög sjómanna“ og eru
tileinkaðir íslenskum sjómannskonum fyrr og nú.

Á efnisskránni eru aðallega lög og ljóð sem hljómuðu í
óskalagaþætti sjómanna, Á frívaktinni, þar sem textarnir fjalla gjarnan um sjómannskonuna,
sem bíður heima og lýsir tilfinningum sínum í ástar- og saknaðarljóðum.

 

Tónleikarnir „Óskalög sjómanna“ hefjast kl 17:00.

 

Sjá nánarÓskalög sjómanna.pdf

30. apríl – 

Það tilkynnist hér með að uppselt er orðið á tónleikana