Eins og fram kom hér á síðunni í gær auglýsti
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið lokun veiðisvæða A og D frá og með
deginum í dag. Ákvörðunin er tekin
á grundvelli áætlunar Fiskistofu á afla viðkomandi svæða.
Þegar skoðaðar eru aflatölur kemur hins vegar í
ljós að eftir er að veiða 74 tonn
á svæði A og 58 tonn á D svæði.
Óánægju gætir með þetta bráðlæti Fiskistofu hjá strandveiðimönnum á
þessum svæðum, sérstaklega á það við svæði D þar sem ördeyða hefur verið á
miðunum síðustu daga.
Sjá nánar: Strandveiðar aflastaða.pdf