Ráðstefna um línufisk – veiðar, vinnsla og markaðssetning


Matís stendur fyrir ráðstefnu um veiðar, vinnslu og markaðssetningu
á línufiski í Gullhömrum í Reykjavík 19. – 20. október nk.   

 

Ráðstefnan er haldin á vegum Matís, Nofima í Noregi,
Háskólans í Tromsö og Havstovunnar í Færeyjum.  Framsöguerindi verða flutt
af sérfræðingum á ýmsum stigum virðiskeðju línufisks og að því loknu fara fram
almennar umræður meðal þátttakenda þ.s. leitast verður við að greina helstu
sóknarfæri í greininni. 

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Aðgangur
að ráðstefnunni er ókeypis og öllum frjáls, en þörf er þó á að skrá sig hjá jonas.r.vidarsson@matis.is
fyrir 13. október.


Sjá nánar dagskrá.pdf