Stjórn
Reykjaness – félags smábátaeigenda á Reykjanesi – samþykkti 20. apríl sl.
eftirfarandi:
„Stórn
Reykjaness, félags smábátaeigenda á Reykjanesi, lýsir furðu sinni á viðhorfum ráðherra
ríkisstjórnarinnar, til þeirra sem enn stunda undirstöðu-atvinnuveg þjóðarinnar.
Að
heyra ráðherra tala frá hinu háa Alþingi um „útgerðarauðvald“ og „sægreifa“ eins og hverja aðra ótínda
glæpamenn, er meira en hægt er að sitja undir þegjandi.
Að
enn á ný skuli forystumenn þjóðarinnar leggjast svo lágt að nota sjávarútveginn
til að fiska til sín athvæði með hótun um þjóðnýtingu, er ekki það sem sjávarútvegurinn
þarf á að halda, nú á þessum tímum.“
Formaður
Reykjaness er Halldór Ármannsson
,