Þrjú fyrirtæki ráða yfir tæpum helmingi veiðiheimilda í karfa og grálúðu

Birtur hefur verið listi yfir kvótastöðu 100 stærstu útgerðanna. HB Grandi ber ægishjálm yfir aðrar útgerðir í þorskígildum talið og er einnig hæstur í ýsu, ufsa, karfa og loðnu eða helmingi þeirra 8 tegunda sem lúta ákvæðum um hámarkseign. Samherji hf er með hæstu hlutdeild í þorski og síld, Brim hf í grálúðu og Vísir hf í úthafsrækju.

Þau þrjú fyrirtæki sem eiga mesta hlutdeild í einstaka tegundum eru:

Þorskígildi:
HB Grandi 11,67%, Samherji hf 7,39% og Brim hf 5,74%. …Samtals 24,8%.

Þorskur:
Samherji hf 6,85%, Brim hf 6,70% og Vísir hf 5,14%. …Samtals 19,42%.

Ýsa:
HB Grandi 6,60%, Brim hf 6,01% og Vísir hf 5,87%. …Samtals 18,48%.

Ufsi:
HB Grandi 17,56%, Þorbjörn hf 6,54% og Brim hf 5,87%. …Samtals 29.97%.

Karfi:
HB Grandi 31,95%, Samherji 8,21% og Brim hf 8,10%. …Samtals 48,26%.

Grálúða:
Brim hf 20,74%, Samherji 13,39% og HB Grandi 13,17%. …Samtals 47,3%.

Síld:
Samherji hf, Síldarvinnslan hf og Skinney-Þinganes hf með 13,31% hvert. …Samtals 39,93%.

Loðna:
HB Grandi 18,68%, Ísfélag Vestmannaeyja hf 15,47% og Síldarvinnslan hf 10,48%. …Samanlagt 44,63%.

Úthafsrækja:
Vísir hf 15,01%, Rammi hf 12,72% og Samherji 12,67%. …Samanlagt 40,4%.

Samkvæmt 13. gr. laga um stjórn fiskveiða má einstakt fyrirtæki ekki eiga meira en 12% af heildarverðmæti (þorskígildi) aflahlutdeildar allra tegunda sem sæta ákvörðun um heildarafla. Í þorski er hámarkið 12%, ýsu, ufsa, grálúðu, síld, loðnu og úthafsrækju 20% og í karfa er hámarkið 35%.

Tölulegar heimildir: Fiskistofa