Það vekur athygli að í dag 5. nóvember skuli sjávarhiti í
Grímsey vera hærri en í Reykjavíkurhöfn.
Á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar má sjá að í haust hefur
sjávarhitinn nánast ekki farið niður fyrir 6°C á meðan hann hefur haldið sig
undir því hitastigi í Reykjavíkurhöfn.
Var í morgun 6,3°C í Grímsey en 5,9° í Reykjavíkurhöfn.
þetta mjög óvenjulegt ástand.
„Á þessum tíma árs er hitinn yfirleitt milli 3 og 4
gráður. Nú er óvenjumikið æti og
eitt sem ég hef ekki séð frá því ég byrjaði að róa, fyrir hálfri öld síðan, er
mikið magn af síld. Hún er ca.
fingurslengdin og því trúlega eins árs.
Fiskurinn djöflast í henni og er vel haldinn“, sagði Sigfús.
Sigfúst sagði tíðarfarið í haust hafa verið mjög erfitt,
þrálátar vestanáttir. Hann hefði
því nánast ekkert komist frá eyjunni til að kanna svæðin norðar. Ég er enn á handfærum og hef komist í 2
tonn af ufsa á dag sem telur nú ekki marga klukkutímana á þessum árstíma. Verðið á ufsanum er ágætt kringum 80
kr/kg, í fyrrahaust lágu ufsaveiðar hins vegar niðri sökum þess hvað verðið var
lélegt, varla hærra en 20 – 30 krónur, sagði Sigfús.
Aðspurður um þorskinn sagði Sigfús hann hegða sér einkennilega,
væri á stjarnfræðilegu dýpi, fengist ekki ofan við 150 faðma, undir því dýpi er
hins vegar mok.
„Þorskurinn er eins og annar fiskur hér í góðum holdum og
vel á sig kominn“, sagði Sigfús að lokum.