Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar Arthur og Alexander

Jón Bjarnason hefur skipað eftirtalda aðila í ráðgefandi hóp
varðandi veiðiráðgjöf og nýtingu auðlinda og ástands í lífríki sjávar:

Alexander Kristinsson útgerðarmaður Rifi, en hann er jafnframt formaður Snæfells og í stjórn LS

Guðmundur Hólm Indriðason útgerðartæknir, Ísafjarðarbæ

Anna Kristín Daníelsdóttir, stofnerfðafræðingur og
sviðsstjóri Matís

Björn Valur Gíslason, skipstjóri og alþingismaður

 

Í starfshóp til endurskoðunar á fyrirkomulagi
fiskveiðistjórnunar skipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftirtalda:

Fulltrúar stjórnmálaflokka:

Guðbjartur Hannesson alþingismaður og Svanfríður Jónasdóttir
bæjarstjóri, ftr. Samfylkingarinnar. Guðbjartur er jafnframt formaður hópsins.

Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismenn, ftr.
Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.

Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, ftr. Framsóknarflokksins.

Einar K. Guðfinnson, alþingismaður, ftr. Sjálfstæðisflokksins.

 

Fulltrúra annarra:

Árni Bjarnason, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.

Adolf Guðmundsson, formaður og Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri
Landssamtaka íslenskra útvegsmanna.

Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda.

Sigrún B. Jakobsdóttir bæjarfulltrúi, ftr. Samtaka íslenskra
sveitarfélaga.

Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri, ftr. Samtaka fiskvinnslustöðva.

Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda.

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.

Aðalsteinn Baldursson, formaður matvælasviðs Starfsgreinasambands Íslands.

Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður VM-Félags vélstjóra og málmtæknimanna.

 

Í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir
m.a. um verkefni starfshópsins: 

Ætlað að skilgreina helstu álitaefni, sem fyrir hendi eru í löggjöfinni.

Að setja fram valkosti um leiðir til úrbóta, þannig að greininni verði
sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma, fiskveiðar verði stundaðar með
sjálfbærum hætti og sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal
þjóðarinnar.

 

Sjá nánar