
Fyrirhugað er að halda endurmenntunarnámskeið fyrir smábátaeigendur 19. desember nk.
Á námskeiðinu verður farið yfir notkun björgunar- og öryggisbúnaðar, kynntar nýjungar sem komið hafa fram á undanförnum misserum. Farið verður yfir lagabreytingar sem varða öryggismál sjómanna og rifjað upp hvernig bregðast á við slysum og fyrirbyggja þau, ásamt viðbrögðum á neyðarstundu.
Nánar um námskeiðið má sjá á bls. 19 í námskrá Slysavarnaskóla sjómanna:
Rétt til þátttöku á námskeiðinu hafa allir þeir sem sótt hafa smábátanámskeið í Slysavarnaskóla sjómanna.
Námskeiðið verður haldið um borð í Sæbjörgu sem liggur í Reykjavíkurhöfn og hefst kl 8:00 árdegis miðvikudaginn 19. desember og lýkur um hádegisbil.
Þátttaka tilkynnist til: saebjorg@landsbjorg.is
eða í síma 4-48-562.













