Smábátaeigendur bæta við þekkingu sína


Næst komandi laugardag útskrifar Verkmenntaskólinn
á Akureyri 17 nemendur með vélastjórnarréttindi á bátum styttri en 12 metrar að
skráningarlengd og með vélarafl minna en 750 kW.  Með því öðlast þeir réttindin smáskipavélaverðir.

Markmið námsins er að veita fólki haldgóða
þekkingu og færni til að annast vélstjórn á smábátum við allar raunhæfar
aðstæður.

Í fréttatilkynningu frá skólanum segir að með
aukinni sókn minni báta hafi eftirspurn í þessi námskeið stóraukist, samfara
aukinni bátaeign almennings á síðustu árum.

 VelgaeslunamskeidHopurI.jpg

Vélgæslunámskeiðin eru vel sótt.  Hér má sjá einn hópinn sem sótti sér réttindin;               smáskipavélavörður.  Kennarar eru Elías Þorsteinsson og Vilhjálmur Kristjánsson 


Námskrá:  Vélstjórn.pdf