Smábátaeigendur bíða viðbragða lánastofnana


Fjölmargir smábátaeigendur hafa í dag haft samband við
skrifstofu LS og spurst fyrir um rétt sinn á grundvelli dóms Hæstaréttar.  Svörin sem þeir hafa fengið eru skýr,
sé lánið í krónum er óheimilt að verðtryggja það með gengi erlendra gjaldmiðla.


Lögmaður sem LS hafði samband við ráðleggur félaginu að
bíða átekta með að óska eftir lánasamningum frá félagsmönnum til túlkunar.  Rétt sé að fá fyrst viðbrögð
lánastofnana við dómnum og taka ákvörðun í kjölfarið.


Ljóst er að félagsmenn LS eiga gríðarlega mikið undir því
að almennar leiðréttingar fáist þannig að höfuðstóll lánanna verði í takt við
það sem skuldbindingar voru gerðar um.

 

Viðragða lánastofnana er því beðið með eftirvæntingu.