Boðaður hefur verið aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur. Fundurinn verður mánudaginn 17. september nk. og hefst kl 20:00. Fundarstaður er kaffistofa félagsins í Suðurbugt (verbúð 5).
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um langþráða upptökubraut sem senn verður tekin í notkun, starfsemi félagsins svo sem rekstur kaffistofu og tölvustýrðu myndeftirlitskerfi.
Formaður og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á það sem fundurinn samþykkir að senda frá sér.
Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Garðar Berg Guðjónsson.