Aðalfundur
Smábátafélagsins Stranda var haldinn á Malarkaffi Drangsnesi sl. laugardag 11.
október. Félagsmenn fögnuðu um
leið 20 ára afmæli félagsins, en það var stofnað 24. september 1988.
Prýðileg mæting
var á fundinn og mikil og góð umræða.
Stóð fundurinn frá 11 árdegis til kl fjögur. Meðal þess sem fundurinn samþykkti voru eftirtaldar
áskoranir til sjávarútvegsráðherra:
- að auka strax
veiðiheimildir í þorski - hækka línuívilnun
í 20% - standa vörð um byggðakvótann
þannig að honum verði áfram úthlutað, sjávarþorpum landsins til hagsbóta - gefa frjálsar
handfæraveiðar með þeim takmörkunum að hver maður megi hafa tvær handfærarúllur
og fjórar handfærarúllur að hámarki á bát - tryggja næga
fjármuni til BioPol á Skagaströnd til áframhaldandi rannsókna á grásleppu.
Smábátafélagið
Strandir vill hafa fyrirkomulag grásleppuveiða með sama hætti og á síðustu
vertíð. Þá samþykkti aðalfundurinn
að fjallað yrði um það á aðalfundi LS hvort krókaaflamarksbátum skildi heimilaðar
netaveiðar.
Smábátafélagið
Strandir mótmælir ákvæði laga nr. 30
23. mars 2007 og reglugerðar nr. 19-5-1. febrúar 2008 sem felur í sér að
menn missi skipstjórnarréttindi sín hafi þeir ekki stundað sjómennsku í fimm ár. Telur fundurinn gróflega brotið á mönnum með þessu
ákvæði.
Stjórn Stranda:
Haraldur Ingólfsson formaður Drangsnesi
Anna Þorbjörg Stefánsdóttir ritari Hólmavík
Már Ólafsson gjaldkeri Hólmavík sem jafnframt er fulltrúi félagsins í stjórn LS.
,
Smábátafélagið Strandir – rækjubætur skertar þvert ofan í gefin loforð