Snæfell heldur félagsfund

Stjórn Snæfells – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi – hefur boðað til félagsfundar. Fundurinn verður haldinn á Hótel Framnesi Grundarfirði, nk. sunnudag 12. mars og hefst kl 17:00.
Snaefell_Merki.jpg
Á fundinum verður m.a. rætt eftirfarandi:
Samþykktir 21. aðalfundar L.S.
Lög um kvótaþak
Lög um jöfnunarsjóð
Rannsóknarsetur Snæfellsbæ.
Reglugerðarhólf Fláka
Steinbítsveiðar í hrygningarstoppi
Horfur í grásleppumálum.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundar, taka þátt í umræðum og fræðast um það sem er efst á baugi.