Snæfell stærsta svæðisfélagið innan LS

Á árinu 2007 lönduðu alls 719 smábátar afla. Það er 59 bátum færra en á árinu áður. Flestir þeirra tilheyra svæðisfélaginu Snæfelli með 91 bát (88).

Næst stærsta félagið er Reykjanes, 88 (91) og í þriðja sæti er Elding með 87 báta, en þar hefur bátum fjölgað um 20 á einu ári.

Klettur, Ólafsfjörður – Tjörnes, sem var stærsta félagið í fyrra fellur niður í fjórða sæti með 84 báta, en þar fækkaði bátum um 24 milli ára.

Meðfylgjandi tafla er skrá yfir svæðisfélögin 15 og fjölda báta sem tilheyrðu þeim 2007, 2006 og árið 2005.

Picture 4.png