Staða veiðiheimilda – meira eftir nú en á sama tíma í fyrra

Misjafnt er milli krókaaflamarkskerfis og aflamarks hversu mikið er búið að veiða í einstökum tegundum. Í dag 10. maí eru krókaaflamarksbátar búnir að nýta tæp 56% (58%) af þorskinum, en í aflamarkinu var hlutfallið komið í 78% (82%).

Í ýsu snýst þetta við, krókaaflamarksbátar eru búnir með 67% (73%) en skip í aflamarki 58% (63%).

Í steinbít eru krókaaflamarksbátar búnir með 70% (64%) af sínum heimildum, en 90% (98,5%) hafa verið nýtt í aflamarkinu.

Á Fiskveiðiárinu er heimilt að veiða 5-1-1 (1-9-1) þús. tonn af þorski, 6-1-1 (4-7-1) af ýsu og 12,6 (13,3) þús. tonn af steinbít.
Hlutur krókaaflamarksbáta 35,8 (39,1) þús. tonn í þorski, 22,0 (20,5) í ýsu og 4,8 (5,6) þús. tonn í steinbít.

Tölur í sviga sýna stöðuna 10. maí 2006.

Unnið upp úr tölum frá Fiskistofu