Stjórn Eldingar – loksins endurspegla tölur Hafró skoðanir sjómanna

Stjórn Eldingar kom saman til
fundar 12. janúar sl.   Meðal
þess sem samþykkt var á fundinum var eftirfarandi:

 

„Stjórn Eldingar tekur heilshugar
undir með bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar um tafarlausa aukningu aflamarks í þorski
um að minnsta kosti 50 þúsund tonn á þessu ári.   

Jafnframt um betri nýtíngu
línuívilnunarinnar.

 

Stjórn Eldingar gagnrýnir
harðlega ágiskanir Hafró varðandi stofnstærð þorsks.   Fjölmargir
aðilar, meðal annars smábátamenn, vöruðu við niðurskurðinum árið 2007 sem
valdið hefur þjóðinni stórtjóni í töpuðum mörkuðum fyrir þorsk.   

Nú hefur Hafró loksins fundið  þorskinn en trúir ekki sínum eigin
tölum.  Fjöldi  sjómanna hefur bent á að mun meiri
þorskur er á slóðinni en áður og alls engin tilfinning að þorskstofninn sé að niðurlotum
kominn þannig að ljóst er að niðurskurður þorskkvótans var stórkostlegt slys og
tjón fyrir þjóðina.“


Ályktun í heild.pdf

Stjórn Eldingar.pdf