Stjórn LS skorar á ráðherra að bæta 20 þús. tonnum við ýsuna


Stjórn Landssambands smábátaeigenda hefur sent Jóni
Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra áskorun um að auka nú þegar
leyfilegan heildarafla í ýsu um 20 þús. tonn.

 

Ályktunin sem stjórnin samþykkti er eftirfarandi:

Stjórn Landssambands
smábátaeigenda skorar á Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að
bæta nú þegar 20 þúsund tonnum við áðurútgefinn heildarafla í ýsu.

Það
er skoðun stjórnar LS að við þá ákvörðun muni ýsuafli þeirra sem veiða með
botnvörpu ekki aukast.  Eðlileg viðskipti kæmust aftur á með leigukvóta og
draga mundi úr þvinguðum viðskiptum.  

Veiðiheimildir
mundu leita til þeirra sem nú geta ekki veitt þorsk sökum mikillar ýsugengdar
á veiðislóðinni.

Hér
er um afar nauðsynlega aðgerð að ræða þar sem við blasir milljarða tap í
minnkandi útflutningsverðmætum og stórháskalegt svelti á mikilvæga markaði.
 

Tilfinnanlegur skortur er á línuveiddri dagróðraýsu.“

 

Í bréfi stjórnarinnar til ráðherra segir ennfremur að samhljómur sé meðal
smábátaeigenda um að víðast hvar á veiðislóð þeirra hafi magn ýsu aukist á
milli ár.  Stjórn LS hafi af því
verulegar áhyggjur að ekki takist að gera verðmæti með veiðum úr úthlutuðum
heildarafla á ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári, eins og gerðist á síðasta
fiskveiðiári.  Helsta ástæða þess eru
ónægar veiðiheimildir krókaaflamarksbáta. 
Þar vega tveir þættir mest, annars vegar botnfrosinn leigumarkaður og hins
vegar gríðarlegar skerðingar á heildarafla ýsu sl. tvö fiskveiðiár.