Strandveiðar
hófust sl. sunnudag 28. júní. 70
bátar voru þá komnir með leyfi og freistuðu margir þess að ná í þau 800 kg sem
leyfilegt er að veiða á hverjum degi.
Heimildir herma
að flestum hafi gengið vel í sínum fyrsta róðri og sumir náð skammtinum á
ótrúlega stuttum tíma. Því
miður var kappið meira en góðu hófi gegnir hjá örfáum aðilum þar sem aflinn var
töluvert umfram þau 800 kg sem leyfilegt er að veiða.
Vegna þessa er
nauðsynlegt að árétta að 800 kg er það hámark sem má fiska á
hverjum veiðidegi og ekki kílógram þar umfram. Það er mikilvægt að allir þeir sem stunda strandveiðar virði
þau mörk þannig að jákvæð umræða verði um hið nýja veiðikerfi.
Rétt er að minna
á að strandveiðar er veiðikerfi sem fellur undir bráðabirgðaákvæði laga um
stjórn fiskveiða. Gera má ráð
fyrir að framtíð þess ráðist af reynslunni sem fæst með því.