Strandveiðar hefjast þriðjudaginn 4. ágúst

Jón
Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að þriðjudagurinn
4. ágúst verði fyrsti dagur strandveiða í ágúst.  Ráðherra hefur undirritað reglugerð þessu til staðfestingar.

Í
tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins af þessu tilefni segir eftirfarandi:  

„Ástæðan fyrir þessu er að
verslunarmannahelgin fellur til í byrjun ágúst og landsmenn, fjölskyldufólk og
aðrir vilja vera í sumarleyfi. 
Jafnframt liggur fyrir að fiskmarkaðir og flestar fiskvinnslur verða
lokaðar, þannig að gæði hráefnisins eru í húfi.  Fram hefur komið að Landssamband smábátaeigenda styður þessa
ráðstöfun.“

 

Á
morgun 30. júlí er síðasti dagur strandveiða í mánuðinum.  Fyrir daginn í dag voru helstu tölur í
veiðikerfinu þessar:

Picture 3.png