Strandveiðar – metfjöldi útgefinna leyfa


Útgefin strandveiðileyfi eru nú orðin fleiri en
í fyrra.  Fiskistofa hefur gefið
út 625 leyfi en á upphafsári strandveiða voru þau 595. 

Heildarafli strandveiðibáta var í gær kominn
yfir tvöþúsund tonn og höfðu bátarnir farið í alls 1-7-3 sjóferðir eftir þeim
afla.  Meðalafli í róðri er því 539
kg.

Helmingur heildaraflans hefur fiskast á svæði
A, en þar er nú aðeins eftir að veiða 8% af leyfilegum afla mánaðarins.

 

Sjá nánar, Staða strandveiða.pdf 

Samantektin er unnin upp úr gögnum frá
Fiskistofu.